Þjónandi forysta

  • Þekkingarsetur
  • Ráðstefnur hér á landi frá 2008
    • Ráðstefna um þjónandi forystu á Bifröst 25. september 2015
    • Ráðstefna á Bifröst 31. október 2014 – Dagskrá
    • Samstaða og árangur – Ráðstefna 14. júní 2013
  • Rannsóknir, greinar & bækur
    • Þjónandi forysta í hnotskurn
    • Í atvinnulífinu
    • Líkan Dirk van Dierendonck um þjónandi forystu
    • Íslenskar rannsóknir
  • Hafa samband
  • English
You are here: Home / Archives for Kynningarfundir

Kynningarfundur á Akureyri miðvikudag 25. apríl 2012 kl.16:30 – 18:00

April 11, 2012 by Sigrún

Nýjar rannsóknir um þjónandi forystu hér á landi

Kynningarfundur um þjónandi forystu miðvikudaginn 25. apríl kl. 16:30 – 18:00 haldinn í Háskólanum á Akureyri, Sólborg stofu M201

Efni: Hugmyndafræði þjónandi forystu og nýjar rannsóknir um þjónandi forystu sem unnar eru til meistaraprófs af nemendum á Akureyri.

Samtal í lok fundar með kaffi og kleinu

Dagskrá:

  • Hugmyndafræði þjónandi forystu og starfið hér á landi – Sigrún Gunnarsdóttir, lektor við HÍ og starfsmaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu
  • Stjórna skólastjórar, í grunnskólum á Norðurlandi eystra, skólum sínum í anda þjónandi forystu? Þóra Hjörleifsdóttir, íslenskukennari í Lundarskóla á Akureyri
  • Líðan sjúkraliða í starfi – hefur stjórnun áhrif? – Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri Sjúkrahússins á Akureyri
  • Þjónandi forysta og starfsumhverfið á hjúkrunarsviðum á sjúkrahúsinu á Akureyri – Hulda Rafnsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri og meistaranemi við heilbrigðisvísindasvið við Háskólann á Akureyri

Fundurinn er öllum opinn

Deila þessu:

  • Tweet
  • Email
  • More
  • Print
  • Share on Tumblr
  • Pocket

Filed Under: Kynningarfundir Tagged With: Akureyri

Fjölsóttur fundur um gildi auðmýktar og þjónandi forystu, 22.3. 2012

March 22, 2012 by Sigrún

Um fimmtíu þátttakendur voru á kynningarfundi um auðmýkt, hógværð og þjónandi forystu sem haldinn var í húsnæði UMFÍ að Sigtúni 42, fimmtudaginn 22. mars 2012.

Fjallað var um fræðilegar og sögulegar hliðar hugtakanna og varpað ljósi á þróun þeirra og gildi í samskiptum og menningu.

Rýnt var í skrif Robert K. Greenleaf um þjónandi forystu sem byggir á auðmýkt og styrk leiðtogans og birtist í því að leita hugmynda annarra og að gefa öðrum rými með orðum og athöfnum.

Kynntar voru niðurstöður nýrra rannsókna hér á landi sem sýna marktæk tengsl hógværrar framgöngu stjórnanda í heilbrigðisþjónustu, skólum og fyrirtækjum og starfsánægju þeirra sem njóta slíkrar forystu og stjórnunar.

Í samtali þátttakenda kom fram að þeir telja mikinn hag af forystu sem er þjónandi og einkennist af auðmýkt og hógværð leiðtogans. Fyrstu skrefin í átt að slíkum samskiptum er rýni í eigin viðhorf og aðferðir. Jafnframt er gagnlegt að nýta viðburði og daglegt líf sem tilefni til að rökræða og fræða hvert annað um gildi hógværðar og auðmýktar fyrir eigin hag og ekki síst fyrir hag annarra. Samskipti við börn og fyrirmyndir barna eru þarna grundvallaratriði.

Einn hópanna batt niðurstöður sínar í þessa vísu: Hógværðin er hjartans mál. /  Henni skaltu flíka. / Auðmýkt sýndu, ekki tál. / Auðnu færðu ríka. / SS.

Samantekt á efni Lenu Rósar er hér.

Samantekt á efni Sigrúnar er hér. 

Deila þessu:

  • Tweet
  • Email
  • More
  • Print
  • Share on Tumblr
  • Pocket

Filed Under: Kynningarfundir Tagged With: myndir

Hvaða árangri skilar hógværð? Kynningarfundur 22. mars 2012 – Sigtúni 42

February 26, 2012 by Sigrún

Opinn kynningarfundur um þjónandi forystu fimmtudaginn 22. mars n.k. kl. 18 – 19:30

Efni: Þjónandi forysta og hógværð – Hvað segja fræðin og rannsóknir hér á landi?

Staðsetning: Sigtún 42, 1. hæð

Stutt kynningarerindi og samtal yfir súpu

  • Sr. Lena Rós Matthíasdóttir: Philotimia versus Humilitas? –  Þjónandi leiðtogi í síkvikum heimi.
  • Dr. Sigrún Gunnarsdóttir: Hógvær framganga stjórnanda og betri árangur.  – Nýjar rannsóknir um þjónandi forystu hér á landi.

Allir velkomnir

Vinsamlega skráið þátttöku fyrir kl. 12, fimmtudaginn 22. mars.

Skráning á fundinn er hér.

Deila þessu:

  • Tweet
  • Email
  • More
  • Print
  • Share on Tumblr
  • Pocket

Filed Under: Kynningarfundir

Þjónandi forysta í hnotskurn

Í stuttu máli má lýsa þjónandi forystu sem samspili þriggja meginstoða sem allar eru innbyrðis tengdar og mynda eina heild:

1) Fyrsta stoðin er einlægur áhugi á hugmyndum og hagsmunum annarra sem birtist með einbeittri hlustun og aðgerðum sem efla aðra og aðstoða þá til að blómstra og að njóta sín.

2) Önnur stoðin er vitun og sjálfsþekking sem birtist í sjálfsöryggi, auðmýkt og hugrekki.

3) Þriðja stoðin er framsýni og skörp sýn á hugsjón sem birtist með sýn á tilgang og ábyrgðarskyldu.

Segja má að fyrstu tvær stoðirnar myndi þjónustuhluta þjónandi foyrstu og þriðja stoðin myndar forystuhlutann. Sjá nánari lýsingu hér.

Líkanið sem hér er lýst byggir á hugmyndum Robert K. Greenleaf sem upphafsmaður þjónandi forystu og birti fyrsta rit sitt um hugmyndina árið 1970 og segir þar m.a.: ,,Þjónandi leiðtogi er í fyrsta lagi þjónn. […] Það byrjar með eðlislægri tilfinningu um að vilja þjóna, að þjóna fyrst. Síðar leiðir meðvituð ákvörðun viðkomandi til forystu. Slíkur einstaklingur er ólíkur þeim sem er fyrst leiðtogi, líklega vegna takmarkaðrar löngunar til valda og efnislegra gæða. (Greenleaf, 1970/2008, 15). Sjá nánar hér.

Facebook

Þjónandi forysta

Rannsóknir um þjónandi forystu

Viðhorf starfsfólks í velferðarþjónustu til starfsumhverfis, forystu og stjórnunar

Eydís Ósk Sigurðardóttir hefur lokið rannsókn til MS gráðu við Háskólann á … [Lestu meira...]

  • Þjónandi forysta og starfsumhverfi starfsmanna í stjórnsýslu sveitarfélaga
  • Menningarhæfni, barneignarþjónusta og þjónandi forysta – Birna Gerður Jónsdóttir
  • Sjö þættir sem einkenna þjónandi leiðtoga

⇒ Fleiri greinar um rannsóknir

Fylgstu með okkur

  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube

Copyright © 2021 · News Pro Theme on Genesis Framework · WordPress · Log in

loading Cancel
Post was not sent - check your email addresses!
Email check failed, please try again
Sorry, your blog cannot share posts by email.