Margt bendir til þess að Lars Lagerbäck þjálfari íslenska fótboltalandsliðsins sé þjónandi leiðtogi. Það fyrsta sem vekur upp þær pælingar er framkoma hans við leikmennina og áherslur hans í viðtölum við fjölmiðla. Í báðum tilvikum er það hógværð sem er einkennandi, yfirvegum og virðing gagnvart náunganum. Annað sem bendir sterklega til þess að Lagerbäck sé þjónandi leiðtogi er fókusinn sem hann hefur á tilganginn og framtíðarsýn liðsins. Þessi skýri fókus endurspeglast greinilega hjá liðsmönnunum.
Áhugavert er að rýna í aðferðir og viðhorf Lars Lagerbäck og bera það saman við hugmyndafræði þjónandi forystu og þeirra þriggja þátta sem eru einkennandi fyrir þjónandi leiðtoga. Byggt er á viðtölum við Lagerbäck og við liðsmenn íslenska fótboltalandsliðsins og erindi sem Lagerbäck hélt um stjórnun og forystu á fundi Félags atvinnurekenda snemma árs 2015.
- Fyrsta einkenni þjónandi forystu er einlægur áhugi á öðrum, hugmyndum þeirra og þörfum. Hjá Lars Lagerbäck kemur þetta mjög skýrt fram. Hann leggur áherslu á að sýna leikmönnum virðingu og traust. Hver og einn liðsmaður skiptir máli og hann leggur sérstaka áherslur á að hver maður fái að njóta sín. Frelsi einstaklinganna og sjálfræði þeirra er grundvallaratriði í þjónandi forystu og þetta kemur líka fram hjá Lagerbäck. Hann virkjar sjálfstæði hvers leikmanns og markmiðið er að hver og einn geti tekið ákvarðanir.
- Annar hluti þjónandi forystu er sjálfsþekking og sjálfsvitund sem skerpist með því að líta í eigin barm, að horfa á sig í speglinum eins og Lagerbäck orðar það sjálfur. Hann telur mikilvægt að þjálfarinn sé meðvitaður um sjálfan sig, eigin skilaboð, t.d. óorðuð skilaboð og líkamstjáningu. Sjálfsþekking og góð sjálfsmynd birtist líka í hógværri framkomu og auðmýkt sem eru sérstök einkenni Lars Lagerbäck sem án ef smitast til leikmannanna og bætir án ef alla samvinnu þeirra á vellinum.
- Þriðja einkenni þjónandi forystu er skörp framtíðarsýn og markmið. Þetta endurspeglast í ábyrgðarskyldu og aga þar sem hver og einn þekkir eigin ábyrgð og hlutverk. Fókus á aðalatriðin er líklega einn af þeim þáttum sem einkenna íslenska fótboltalandsliðið og skýrist án efa af skarpri sýn Lagerbäck á markmiðin og áherslu hans á aga og ábyrgð hvers og eins. Hann leggur áherslur á fáar reglur, ábyrgð hvers og eins og að fókusinn sé á aðalatriðin.
Það væri fróðlegt að rýna nánar í áherslur í þjálfun í íþróttum út frá hugmyndafræði þjónandi forystu. Hér er vísun í nokkrar pælingar sem komu fram í viðtal á RUV föstudaginn 3. september sl. Viðtalið hefst á 36. mínútu.
Mynd frá: http://www.ksi.is/landslid/nr/11474
Ráðstefna um þjónandi forystu á Bifröst 25. september 2015