Þjónandi forysta

  • Þekkingarsetur, viðburðir
    • Ráðstefnur hér á landi frá 2008
      • Ráðstefna um þjónandi forystu á Bifröst 25. september 2015
      • Ráðstefna á Bifröst 31. október 2014 – Dagskrá
      • Samstaða og árangur – Ráðstefna 14. júní 2013
  • Pistlar
  • Rannsóknir, greinar & bækur
    • Þjónandi forysta í hnotskurn
    • Í atvinnulífinu
    • Líkan Dirk van Dierendonck um þjónandi forystu
    • Íslenskar rannsóknir
  • Fréttabréf
  • Hafa samband
  • English
You are here: Home / Þjónandi forysta / Kasper Edwalds sérfræðingur í straumlínustjórnun og þjónandi forystu við DTU talar á ráðstefnunni á Bifröst 25. september 2015

Kasper Edwalds sérfræðingur í straumlínustjórnun og þjónandi forystu við DTU talar á ráðstefnunni á Bifröst 25. september 2015

August 6, 2015 by Sigrún

Kasper Edwalds sérfræðingur í straumlínustjórnun og þjónandi forystu við DTU verður fyrirlesari á ráðstefnunni á Bifröst 25. september nk.  Kasper kom hingað einnig á ráðstefnu um þjónandi forystu árið 2011 og fjallaði þá um straumlínustjórnun og þjónandi forystu. Nú í ár mun erindi hans taka mið af efni ráðstefnunnar sem er þjónandi forysta og brautryðjendur.

Erindi Kasper Edwalds á ráðstefnunni á Bifröst í haust ber yfirskriftina: ,,The servant leadership of change – Successful change required leaders to stand back”. Erindið byggir m.a. á rannsóknum Kasper um breytingastjórnun á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og verður fróðlegt að hlýða á Kasper lýsa því hvernig þættir þjónandi forystu hjá stjórnendum tengast árangri breytinga og eru hugsanlegir áhrifaþættir hjá brautryðjendum framfara og breytinga.

Kasper Edwalds starfar við DTU í Kaupmannahöfn sem senior researcher á sviði ,,Production and Service Management”. Hann er formaður stjórnar NOVO rannsóknarsamstarfsins sem snýr að heilbrigðu starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustunni.  Meðal rannsóknarverkefna NOVO er rannsókn um straumlínustjórnun, þjónandi forystu og starfsumhverfi sem nær til sjúkrahúsa í Svíþjóð, Danmörku og á Íslandi. Rannsóknarhlutinn hér á landi fór fram á bráðamóttökudeildum Landspítala og fyrstu niðurstöður þar benda til mikilvægis þjónandi forystu fyrir sköpunargleði starfsfólks og árangur af innleiðingu straumlínustjórnunar á sjúkrahúsi.

Kasper Edwards

Kasper Edwalds

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ráðstefna um þjónandi forystu á Bifröst 25. september 2015

Skráning

Sjötta ráðstefnan um þjónandi forystu verður haldin á Háskólanum á Bifröst föstudaginn 25. september 2015 kl. 10 – 15:30. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Þjónandi forysta og brautryðjendur.

Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar og þátttakendur leita svara við spurningunni: ,,Hvernig getur þjónandi forysta verið drifkraftur brautryðjandans?”.

Snemmskráning fyrir 15. ágúst 2015: Þáttökugjald kr. 19.900

Skráning frá og með 15. ágúst 2015: Þátttökugjald kr. 24.900

Dagskrá:

kl. 10 –  Opnun ráðstefnu

  • Dr. Carolyn Crippen, Victoria University, Kanada
  • Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Johan Rönning
  • Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar
  • Dr. Róbert Jack, heimspekingur

kl. 12 – Hádegishlé og samtal í hópum

  • Dr. Kasper Edwalds, DTU Kaupmannahöfn
  • Hildur Eir Bolladóttir, prestur Akureyri
  • Einar Svansson, lektor Háskólanum á Bifröst
  • Dr. Carolyn Crippen – ,,Begin with Listening”

kl. 15:30 – Lokaorð og ráðstefnuslit

Skráning á ráðstefnuna

 

thjonandi-forysta-logo

Share this:

  • Facebook
  • Twitter
  • Email
  • More
  • Print
  • LinkedIn
  • Pinterest
  • Tumblr
  • Reddit
  • Pocket

Related

Filed Under: Þjónandi forysta, Þjónandi leiðtogi, Bifröst, Brautryðjendur, Kasper Edwalds, Ráðstefnur, Servant leader, Servant leadership, straumlínustjórnun, Valdar greinar

Fylgstu með okkur

  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube

Þjónandi forysta í hnotskurn

Í stuttu máli má lýsa þjónandi forystu sem samspili þriggja meginstoða sem allar eru innbyrðis tengdar og mynda eina heild:

1) Fyrsta stoðin er einlægur áhugi á hugmyndum og hagsmunum annarra sem birtist með einbeittri hlustun og aðgerðum sem efla aðra og aðstoða þá til að blómstra og að njóta sín.

2) Önnur stoðin er vitun og sjálfsþekking sem birtist í sjálfsöryggi, auðmýkt og hugrekki.

3) Þriðja stoðin er framsýni og skörp sýn á hugsjón sem birtist með sýn á tilgang og ábyrgðarskyldu.

Segja má að fyrstu tvær stoðirnar myndi þjónustuhluta þjónandi foyrstu og þriðja stoðin myndar forystuhlutann. Sjá nánari lýsingu hér.

Líkanið sem hér er lýst byggir á hugmyndum Robert K. Greenleaf sem upphafsmaður þjónandi forystu og birti fyrsta rit sitt um hugmyndina árið 1970 og segir þar m.a.: ,,Þjónandi leiðtogi er í fyrsta lagi þjónn. […] Það byrjar með eðlislægri tilfinningu um að vilja þjóna, að þjóna fyrst. Síðar leiðir meðvituð ákvörðun viðkomandi til forystu. Slíkur einstaklingur er ólíkur þeim sem er fyrst leiðtogi, líklega vegna takmarkaðrar löngunar til valda og efnislegra gæða. (Greenleaf, 1970/2008, 15). Sjá nánar hér.

Copyright © 2023 · News Pro Theme on Genesis Framework · WordPress · Log in

 

Loading Comments...