Þekkingarsetur um þjónandi forystu, Iðnú og Bóksala stúdenta fagna útgáfu íslensku þýðingarinnar á fyrsta riti Robert K. Greenleaf um þjónandi forystu: Þjónn verður leiðtogi (á ensku: Servant as leader).
Útgáfugleðin verður haldin í Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi Háskóla Íslands við Suðurgötu miðvikudaginn 8. ágúst 2018 kl. 16:30 til 18.
Bókin verður til sölu á sérstöku tilboðsverði og boðið upp á léttar veitingar.
- Óttarr Proppé bóksölustjóri býður gesti velkomna.
- Robert Jack, þýðandi bókarinnar, fjallar í nokkrum orðum um þjónandi forystu og bókina.
- Sigrún Gunnarsdóttir, formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu, talar í stuttu máli um gildi bókarinnar fyrir þjónandi forystu hér á landi.
- Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú, segir frá útgáfu bókarinnar.
Nánari upplýsingar um nýju bókina hér.