Haraldur Líndal Pétursson forstjóri Johan Rönning hf talar á ráðstefnunni á Bifröst 25. september nk. og mun þar fjalla um reynslu sína og sýn á þjónandi forystu miðað við efni ráðstefnunnar sem er: Þjónandi forysta og brautryðjendur.
Erindi sitt kallar Haraldur ,,(Ó)meðvituð þjónandi forystu innan Johan Rönning”. Haraldur mun veita okkur innsýn inn í fyrirtækið sem hlotið hefur nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki ársins í vinnumarkaðskönnun VR síðastliðin fjögur ár. Í fyrirlestrinum varpar Haraldur fram nokkrum spurningum:
- Hvaða leyndarmál liggja að baki þessari miklu starfsánægju innan fyrirtækisins?
- Hvernig viðheldur fyrirtækið þessari starfsánægju og með hvaða hætti hafa starfsmenn tekið þátt í að byggja upp þessa starfsánægju?
- Með hvaða hætti hafa þær ákvarðanir sem teknar voru af eigendum/stjórnendum á erfiðleikaárunum í kringum hrunið þróast?
- Hvernig hefur fyrirtækinu gengið að virkja stjórnendur og starfsmenn að vinna eftir hugmyndafræði „þjónandi forysta“ og hversu stóran þátt hefur aðferðarfræðin átt í því að skapa starfsánægju innandyra?
- Hvernig nýtist það návígi sem skapast með þessari aðferðarfræði milli stjórnenda og starfsmanna?
- Hvernig hefur aðferðarfræði þjónandi forystu skapað tækifæri innandyra hjá starfsfólki?
- Hvernig hefur fyrirtækið náð að nýta sé þjónandi forystu í að skapa sér aukið samkeppnisforskot?
Ofangreindum spurningum mun Haraldur leitast við að svara í fyrirlestri sínum og hvaða aðferðarfræði fyrirtækið beitir í því að laða það besta fram í hverjum innan hópsins.
Það verður sérstaklega áhugavert að kynnast hugmyndum Haraldar og sjá hvernig viðhorf hans og reynslan hjá Johan Rönning endurspeglast í hugmyndafræði þjónandi forystu sem einkennist á einlægum áhuga á hugmyndum og hagsmunum annarra, stöðugri þekkingarleit og sjálfsþekkingu og síðast en ekki síst hugsjón og skarpri framtíðarsýn.
Johan Rönnig var valið fyrirtæki ársins 2014 í hópi stórra fyrirtækja þriðja árið í röð samkvæmt könnun VR. Johan Rönning var stofnað árið 1933 hefur 5 ár í röð verið valið fyrirmyndarfyrirtæki VR ásamt því að hljóta nafnbótina fyrirtæki ársins 2012, 2013 og 2014. Johan Rönning hlaut einnig jafnlaunavottun VR árið 2013, eitt af fyrstu fyrirtækjum í landinu til að hljóta slíka viðurkenningu.
Ráðstefna á Bifröst föstudaginn 25. september 2015 kl. 10 – 15:30.
Ráðstefna um þjónandi forystu á Bifröst 25. september 2015
Sjötta ráðstefnan um þjónandi forystu verður haldin á Háskólanum á Bifröst föstudaginn 25. september 2015 kl. 10 – 15:30. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Þjónandi forysta og brautryðjendur.
Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar og þátttakendur leita svara við spurningunni: ,,Hvernig getur þjónandi forysta verið drifkraftur brautryðjandans?”.
Snemmskráning fyrir 15. ágúst 2015: Þáttökugjald kr. 19.900
Skráning frá og með 15. ágúst 2015: Þátttökugjald kr. 24.900
Dagskrá:
kl. 10 – Opnun ráðstefnu
- Dr. Carolyn Crippen, Victoria University, Kanada
- Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Johan Rönning
- Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar
- Dr. Róbert Jack, heimspekingur
kl. 12 – Hádegishlé og samtal í hópum
- Dr. Kasper Edwalds, DTU Kaupmannahöfn
- Hildur Eir Bolladóttir, prestur Akureyri
- Einar Svansson, lektor Háskólanum á Bifröst
- Dr. Carolyn Crippen – ,,Begin with Listening”
kl. 15:30 – Lokaorð og ráðstefnuslit