Næsta haust verður stigið mikilvægt skref fyrir þjónandi forystu hér á landi með nýrri námslínu til meistaragráðu í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst. Um er að ræða námslínu innan námsbrautarinnar Forysta og stjórnun.
Síðan 2013 hefur þjónandi forysta verið kennd sem hluti af námi í viðskiptafræði á Bifröst, bæði á BS stigi og MS stigi. Námið hefur mælst vel fyrir og ákveðið að halda áfram að þróa kennsluna og bjóða nemendum að sérhæfa sig enn frekar á sviði þjónandi forystu. Eins og í öðrum námslínum innan Forystu og stjórnunar er hægt að ljúka náminu með ritgerð eða án ritgerðar.
Ný námskeið um þjónandi forystu
Hin nýja meistaralína felur í sér þrjú námskeið um þjónandi forystu og lýkur með meistaragráðu í Forystu og stjórnun með áherslu á þjónandi forystu. Námslínan er skipulögð sem sérhæfing innan meistaranáms í Forystu og stjórnun og námskeið á sviði forystu og stjórnunar eru hluti af hinni nýju námslínu
Nemendur sem skrá sig í námslínu til meistaragráðu í þjónandi forystu taka öll grunnnámskeið innan Forystu og stjórnunar auk þriggja námskeiða um þjónandi forystu. Hvert námskeið hefur sérstaka áherslu innan fræðanna um þjónandi forystu og fjallað um hagnýtingu á grunni þekkingar og nýrra rannsókna.
Hvað verður fjallað um í námskeiðunum um þjónandi forystu?
- Í fyrsta námskeiðinu er fjallað um grunnatriði hugmyndafræðinnar með áherslu á rit Greenleaf og nýjar rannsóknir um þjónandi forystu erlendis og hér á landi. Rýnt er í hugmyndir Greenleaf og fjallað um rannsóknir sem varpa ljósi á árangur þjónandi forystu fyrir líðan starfsfólks og árangur skipulagsheilda.
- Í námskeið númer tvö er sjónum beint sérstaklega að þjónustuhluta þjónandi forystu og rýnt í rannsóknir sem snúa að hlustun, áhuga á hagsmunum og hugmyndum annarra sem og sjálfsþekkingu og sjálfsstyrk þjónandi leiðtoga. Sérstaklega er fjallað um þætti þjónandi forystu sem tengjast vellíðan og starfsgetu. Þá verður fjallað um núvitund sem árangursríka leið til að styrkja leiðtogafærni og árangur í starfi.
- Í þriðja námskeiðinu er fjallað um mikilvægar hliðar leiðtogahluta þjónandi forystu, þ.e. framsýni, tilgang, hugsjón og ábyrgðarskyldu. Sjónum er beint að nýjum hugmyndum um skipulag og þjónandi forystu. Ábyrgðarskylda í þjónandi forystu verður rædd sérstaklega og fjallað um leiðir til að efla ábyrðarskyldu með aðferðum þjónandi forystu. Þá verður fjallað um þjónandi forystu í stjórnsýslu hér á landi, bæði innan ráðuneyta og sveitarstjórna.
Kennsla í þjónandi forystu við Háskólann á Bifröst hefur undanfarin ár verið skipulögð og framkvæmd í samvinnu við Þekkingarsetur um þjónandi forystu og svo verður einnig um hina nýju námslínu. Þessi nýi áfangi er miklvægt framlag til þjónandi forystu hér á landi og felur í sér tækifæri til að þróa enn frekar þekkingu og hagnýtingu þjónandi forystu hér á landi.
Kynningarfundur
Kynning á hinni nýju námslínu verður þriðjudaginn 12. febrúar nk. að Suðurlandsbraut 22, 2. hæð, húsnæði Háskólans á Bifröst. Fundurinn hefst kl. 17:30 með stuttu kynningarerindi um þjónandi forystu og síðan tekur við kynning á nýju námslínunni. Sjá nánar um viðburðinn hér (facebook).