Ráðstefnan á Bifröst um þjónandi forystu og brautryðjendur þann 25. september s.l. gekk mjög vel. Alls voru um 180 þátttakendur víða að á ráðstefnunni og nutu fyrirlestranna sem voru fluttir og samstalsins í hópum sem fór fram í hádegishléi.
Margar fróðlegar og áhugaverðar pælingar, hugmyndir og tillögur komu fram þegar rætt var um spurningarnar tvær sem varpað var fram til skoðunar:
- Er tími frekjuhundsins liðinn?
- Er auðmýkt gagnleg fyrir brautryðjendur?
Hóparnir voru alls 18 og í hverjum hóp voru tveir hópstjórar sem héldu utan um samtalið og tóku saman helstu atriðin sem fram komu í samtalinu. Hópstjórunum eru færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag og fyrir samantekt á því helsta sem fram kom í orðum þáttttakenda.
Samtal er grunnstef í þjónandi forystu og Robert K. Greenleaf, upphafsmaður þjónandi forystu, lagði áherslu á að birtingarmynd þjónandi forystu væri uppbyggilegt samtal og að innleiðing þjónandi forystu færi fram í gegnum samtal. Sjá til dæmis hans The Servant as Leader frá árinu 1970.
Allir punktarnir frá hópunum eru birtir hér á pdf skjali. Meðal þess sem fram kemur í samantektum hópanna er eftirfarandi:
Já, tími frekjuhundsins er liðinn meðal stjórnenda en hann lifir í samfélaginu.
En samfélagið er betur upplýst, þess vegna lýðst þetta ekki lengur.
Frekjuhundur er drottnandi persóna, sjálfhverfur, hefur ekki heildarsýn, veður yfir aðra, vantar virðingu fyrir öðrum.
Óbilandi trú á eigin ágæti – berst fyrir sínu.
Þarf að breyta frekjuhundapólítik.
Það eykur framleiðni að stefna að sama markmiði en það gerir frekjuhundurinn ekki.
Auðmýkt er nauðsynlegur hluti af nálgun brautryðjanda.
Þegar hann þarf að fá aðra með sér þá er auðmýkt mikilvægur eiginleiki.
Kvekararnir segja – hreykið ykkur ekki af verkum ykkar.
Dæmi sem nýlega hafa verið á sjónarsviðinu:
Auðmýkt landsliðsþjálfarans skein í gegn. Hann er dæmi um að menn geta breyst og vaxi því hann þurfti sjálfur að umbreyta sér og láta af hroka.
Allir punktarnir frá samtalshópunum á ráðstefnunni á Bifröst 2015 eru birtir hér á pdf skjali.