Fuglarnir (Þjónandi forysta branding)

Ráðstefna á Bifröst 31. október 2014. Hverjir munu fjalla um þjónandi forystu í atvinnulífi og rannsóknum?

Gary Kent hjá Schneider Corporation er aðalfyrirlesari ráðstefnunnar um þjónandi forystu 31. október nk. Ráðstefnan hefst með erindi hans sem ber yfirskritina: ,,Anyone could lead perfect people, – if there were any”.

Auk Gary munu einstaklingar úr atvinnulífinu segja frá reynslu sinni af þjónandi forystu:

  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Reykjavík
  • Róbert Guðfinnsson, frumkvöðull og fjárfestir, Siglufirði og Arizona
  • Gunnar Svanlaugsson, form. kkd. Snæfells, Stykkishólmi
  • Vilhjálmur Egilsson, rektor, Háskólanum á Bifröst
  • Sigurður Ragnarsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs, Háskólanum á Bifröst
  • Sigrún Gunnarsdóttir, dósent, Háskólanum á Bifröst
  • Óttarr Proppé, alþingismaður og tónlistarmaður, Reykjavík

Einnig verður sagt frá nýjum rannsóknum um þjónandi forystu hér á landi og höfundar rannsóknanna sem munu flytja þau erindi eru: 

  • Alda Margrét Hauksdóttir, yfirlífeindafræðingur KLH / Hjartavernd, Reykjavík
  • Auður Pálsdóttir, aðjúnkt, Háskóla Íslands, Reykjavík
  • Birna Dröfn Birgisdóttir, doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík
  • Heiða Björg Ingólfsdóttir, leikskólakennari, Akureyri
  • Hildur Haraldsdóttir, bókhalds- og innheimtufulltrúi Verkmenntaskólans á Akureyri
  • Steingerður Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri á skóla- og frístundasviði hjá Reykjavíkurborg
  • Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Varmárskóla, Mosfellsbæ

Háskólinn á Bifröst og Þekkingarsetur um þjónandi forystu halda ráðstefnuna sem fer fram á Bifröst föstudaginn 31. október 2014. kl. 10 – 16. Aðalfyrirlesari er Gary Kent, þjónustustjóri hjá Schneider Corporation sem hefur nýtt þjónandi forystu í skipulagi og stjórnun fyrirtækisins undanfarin 25 ár. Erindi hans hefur yfirskriftina: ,,Anyone could lead perfect people, – if there were any”.

Skráning á ráðstefnuna er opin hér.

Fuglarnir (Þjónandi forysta branding)
Þjónandi forysta branding