Þjónandi forysta: nýjar rannsóknir og reynsla af þjónandi forystu í daglegum störfum
Dagskrá:
17:00 – 18:10: Rannsóknir um þjónandi forystu.
Nýútskrifaðir meistarar og meistaranemar auk Dr. Sigrúnar Gunnarsdóttur við Háskóla Íslands kynna nýjar rannsóknir um þjónandi forystu og tengsl hennar við starfsánægju og gæði þjónustu hér á landi. Kynntar verða rannsóknir sem unnar eru með lífeindafræðingum, starfsfólki sjúkrahúsa, starfsfólki þjónustufyrirtækis, starfsfólki félagsþjónustu og erlendum konum sem þáðu mæðravernd hér á landi. Eftirtaldar kynna rannsóknir sínar: Alda M. Hauksdóttir (lífeindafræðingar), Birna G. Jónsdóttir (erlendar mæður), Erla Björk Sverrisdóttir (starfsfólk sjúkrahúsa), Sólveig Reynisdóttir (starfsfólk þjónustufyrirtækis) og Steingerður Kristjánsdóttir (starfsfólk félagsþjónustu).
18:10 – 19:00: Samtal í hópum um þjónandi forystu og kvöldverður.
19:00 – 19:50: Þjónandi forysta í daglegum störfum. Reynsla af þjónandi forystu hér á landi í heilbrigðisþjónustunni og í starfi kirkjunnar. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, Grafarvogskirkju og Þórunn Benediktsdóttir hjúkrunarforstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fjalla um reynslu sína af þjónandi forystu í daglegum störfum.
Málþingið er opið öllum áhugasömum. Staðsetning: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Keflavík, fundarsalur þriðju hæð Þátttökugjald er kr. 1000, vegna kostnaðar við kvöldverð. Skráning hjá thjonandiforysta hja thjonandiforysta.is og hjá Keflavíkurkirkju fyrir kl. 14 miðvikudaginn 19. 5. Málþingið er haldið í fundarsal HSS á þriðju hæð. Gengið er inn um aðalinnganginn og til vinstri og síðan til hægri að lyftu sem er tekin upp á þriðju hæð. Sjá kort á já.is