Mikil ánægja með ráðstefnuna 14. júní 2013 – Dæmi um ummæli þátttakenda

Þátttakendur á ráðstefnunni Þjónandi forysta, menntun, sköpun og samfélag í Listasafni Reykjavíkur voru mjög ánægðir með efni og skipulag ráðstefnunnar. Hér eru nokkur dæmi um orð þeirra:

  • Takk fyrir mig, þetta var mjög áhugaverður og skemmtilegur dagur. Nú er bara að sökkva sér í lesefnið sem var keypt.
  • Hjartans þakkir fyrir mig. Ég sofnaði glaður, fann fyrir þeirri góðu orku sem við sendum út í samfélagið.
  • Til hamingju með þetta! Stórglæsilegt að koma inn í þéttsetinn salinn.
  • Takk kærlega fyrir góða og skemmtilega ráðstefnu, hún vakti svo sannarlega áhuga minn á þessu efni.
  • Þessi ráðstefna var að mínu mati ,,mega hittari”.
  • Allir sem ég hef heyrt í eru alsælir með ráðstefnuna.
  • Þetta var mjög áhugavert og virkilega góðir fyrirlestrar.
  • Þetta var mjög vel heppnað og þau sem ég heyrði í eftirá eru mjög ánægð.
  • Mér fannst Crippen alveg standa uppúr
  • Takk fyrir frábæra ráðstefnu í síðustu viku. Mjög vel heppnuð með frábærum fyrirlesurum og frábæru efni. Það var margt sem ég tók með mér heim eftir daginn.
  • Takk fyrir afar hvetjandi dag.
  • Takk innilega fyrir mig, þetta var afskaplega góður dagur. Gaman að taka þátt í vegferð sem við vitum að þarf að vara út lífið, sum sé námskeið sem varar út lífið ef vel er haldið á spöðunum.
  • Hlakka til að æfa mig í vinnunni og reyndar heima líka og fara svo að lesa meira.
  • Hjaratans þakkir fyrir að fá að taka þátt í þessari góðu ráðstefnu og takk fyrir samveruna 🙂
  • Það var mjög gaman að taka þátt í þessari skemmtilegu og áhugaverðu ráðstefnu á þennan hátt. Einstaklega vel heppnaður dagur sem ég hlakka til að vinna betur úr.
  • Dagurinn var virkilega ánægjulegur og skemmtilegur. Takk fyrir að fá að taka þátt með þessum hætti.
  • Takk fyrir mjög góðan dag, ráðstefnan heppnaðist vel.

IMG_8448

 

IMG_8447

 

IMG_8480

IMG_8466

 

IMG_8413