Þjónandi forysta fuglar

Þjónandi forysta

Þekkingarsetur um þjónandi forystu

Lifandi námstefna og metaðsókn á fyrirlestur í Háskóla Íslands

Námstefnan með Kent M Keith helgina 5. til 7. mars gekk afar vel. Þátttakendur komu víða að og nutu kennslu og leiðsagnar Kents og rökræðu og samtals í vinnuhópum. Mikil ánægja var meðal þátttakenda sem starfa víðsvegar í samfélaginu, t.d sem stjórnendur í viðskiptalífinum, kennarar í framhaldskólum,  rannsakendur og kennarar í háskólum, prestar í þjónustu kirkjunnar, stjórnendur á sjúkrahúsum og leiðtogar í þjónustu sveitarfélaga. Fyrirlestrar Kents fjölluðu um inntak þjónandi forystu frá ýmsum sjónarhornum. Þátttakendur glímdu við verkefni og spurningar um eigin áherslur og viðhorf til grundvallarþátta þjónandi forystu; að þekkja sjálfan sig, hlusta af alúð, leiðbeina og laða fram orku og vitsmuni annarra, breyta píramídanum og horfa fram á veginn. Námstefnan undirstrikaði sannarlega gildi hugmyndafræðinnar og gildi hennar hér á landi.

Ljósmyndir frá námsstefnunni:

Fyrirlestur Kents í hátíðarsal Háskóla Íslands var mjög vel sóttur og setið í nær hverju sæti. Kent lýsti á lifandi og sannfærandi hátt hvernig þjónandi forystu eflir siðgæði fyrirtækja og glæðir störf og stjórnun þannig að tilgangur og merking starfanna eru í forgrunni og hafa djúp og jákvæð áhrif á líðan starfsfólks og árangur . Kent dró fram sterk rök fyrir því að með hugmyndafræði þjónandi forystu og aðferðum hennar vex árangur fyrirtækja. Velgengni fjölmargra fyrirtækja vitna um gildi þjónandi forystu fyrir rekstur og hagsmuni samfélagsins í heild.

Kent M. Keith í Háskóla Íslands 8. mars kl. 16

Dr. Kent M. Keith flytur fyrirlestur sinn Servant Leadership: Ethical, Practical, and Meaningful í hátíðarsal Háskóla Íslands mánudaginn 8. mars kl. 16

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Dr. Keith er framúrskarandi fyrirlesari og höfundur bóka um þjónandi forystu. Bók hans The Case For Servant Leadership er með vinsælli bókum um hugmyndafræði og aðferðir þjónandi forystu.

Kent M. Keith er framkvæmdastjóri Greenleaf Center for Servant Leadership í Indianapolis og er hér á landi sem gestur miðstöðvar um þjónandi forystu, Greenleaf Center for Servant Leadership – Iceland.

Fyrirlesturinn í Háskóla Íslands er skipulagður í samvinnu viðskiptafræðideildar, guðfræði- og trúarbragafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, sjá hér.

Dagskrá námskeiðs Dr. Kent M. Keith í Skálholti 5.-7. mars 2010

Föstudagur 5. mars
Kl. 18:00. Dagskrá hefst með kvöldverði
Kl. 19:30. Kent M Keith: The Power Model vs. Servant Model of Leadership
Laugardagur 6. mars
Kl. 10:00. Kent M Keith. Vinnusmiðja nr. 1: The Key Practices of Servant Leaders
Kl. 14:00. Kent M Keith. Vinnusmiðja nr. 2: The Servant Institution
Kl. 18:00 Tónlist og kvöldverður
Sunnudagur 7. mars
kl. 10:00. Kent M Keith: Meaning and Ego in the Life of a Servant Leader
Námskeiðinu lýkur með umræðum að loknu erindi Dr. Keith.

Skráning
Skráning er á skalholt.is, símleiðis í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.
Námskeiðskostnaður: Gisting og fullt fæði 17.000.- kr. Námskeiðsgjald: 10.000.- kr.

Messa í Skálholtskirkju kl. 14
Að námskeiði loknu er messa í Skálholtskirkju kl. 14 þar sem Dr. Kent M. Keith flytur predikun undir yfirskriftinni  Servant leadership in the broader context of the paradoxical life and teachings of Jesus.

Fyrirlestur Dr. Kent M. Keith í Háskóla Íslands 8. mars kl. 16

Dr. Kent M. Keith heldur fyrirlestur í hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 8. mars nk.  kl. 16 – 17.

Dr. Keith mun fjalla um þjónandi forystu undir yfirskriftinni Servant Leadership: Ethical, Practical, and meaningful.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og er skipulagður í samvinnu viðskiptafræðideildar, guðfræði- og trúarbragafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar um Dr. Kent M. Keith má sjá á þessu síðum:
www.kentmkeith.com
www.paradoxicalcommandments.com
www.greenleaf.org/aboutus/staff.html

Kent M. Keith – Námskeið 5. – 7. mars 2010

Skráning er hafin á námskeið Dr. Kent M. Keith í Skálholti helgina 5.-7. mars 2010.

Hægt er að skrá sig rafrænt á skalholt.is, símleiðis í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.

Námskeiðið hefst á föstudegi kl. 18.00 og því lýkur um kaffileitið á sunnudegi.

Námskeiðskostnaður: Gisting og fullt fæði 17.000.- kr. Námskeiðsgjald: 10.000.- kr.

Dagskrá námskeiðsins verður birt hér á síðunni í janúar nk.

Nokkrir viðburðir á haustdögum

Leshópar
Leshópar
fara af stað aftur eftir sumarhlé. Þau sem hafa áhuga á að bætast í leshópa hafi samband við sigrun hjá thjonandiforysta.is.

Þýðing bókar Kent M. Keith, The case for servant leadership (2008)
Gunnbjörg Óladóttir vinnur að þýðingu bókarinnar. Sýnishorn af þýðingu kafla nr. 3 og nr. 4 má sjá hér. Þau sem hafa áhuga á að fá senda til sín bókarkaflana í íslenskri þýðingu geta sent skilaboð þar um til sigrun hjá thjonandiforysta.is.

Þjóðkirkjan og lýðræðið
Dagana 23.-24. ágúst s.l. fór fram ráðstefnan Þjóðkirkjan og lýðræðið. Meðal umræðuefna var þjónandi forysta, t.d. í erindi Skúla Ólafssonar Hvers konar leiðtogar? Þjóðkirkjan og þjónandi forysta.

Námskeið fyrir presta í Skálholti
Dagana 4.-5. október næstkomandi verður boðið upp á námskeið fyrir presta um þjónandi forystu. Upplýsingar um dagskrá og skráningu má sjá á vef Skálholts.

Námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga
Unnið er að undirbúningi kynningar og  námskeiðs fyrir hjúkrunarfræðinga um þjónandi forystu.  Áhugasöm vinsamlega hafið samband við sigrun hjá thjonandiforysta.is.

Kent M. Keith með námskeið og fyrirlestur í mars 2010

Dr. Kent M. Keith er framkvæmdastjóri Greenleaf Center for Servant Leadership í Indianapolis í Bandaríkjunum. Hann hélt fyrirlestur á ráðstefnunni um þjónandi forystu 20. júní á síðasta ári. Vakti fyrirlestur hans mikla ánægju þátttakenda fyrir hrífandi framsögu og afburða framsetningu á hugmyndunum um þjónandi forystu.

Námskeið í Skálholti 5. – 7. mars 2010
Kent M. Keith heldur námskeið í Skálholti helgina 5. til 7. mars. Dagskrá og skráning á námskeiðið verður kynnt hér á næstu vikum.  Fyrirspurnir má senda í gegnum þetta form.

Opinber fyrirlestur 8. mars 2010
Mánudaginn 8. mars kl. 16 heldur Kent M. Keith opinberan fyrirlestur í Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn verður nánar auglýstur þegar nær dregur.

Sjá:
www.kentmkeith.com
www.paradoxicalcommandments.com
www.greenleaf.org

Málþing 22. febrúar 2009

img_1170

Hvernig verður þjónandi forysta að veruleika?

Málþingið tókst mjög vel. Um 40 þátttakendur, víðsvegar úr samfélaginu, settu fram hugmyndir sínar um þjónandi forystu í íslensku samfélagi.

Dagskrá málþingsins er hér (PDF)

Erindi Kristins Ólasonar

Niðurstöður umræðu í hópunum um spurningarnar þrjár:

Hópur 1Hópur 2Hópur 5

Nokkrar myndir frá málþinginu…

Lesa meira »

Leshópar

Leshópar eru starfandi á nokkrum stöðum. Áhugasöm vinsamlega sendið skilaboð til sigrun hjá thjonandiforysta.is

Lesefni er kynnt jafnóðum hér á síðunni.

Fundur 7. október 2008

© 2009-2012 Þjónandi forysta. All Rights Reserved.

This blog is powered by Wordpress and Magatheme by Bryan Helmig | Hýsing: Hannes í boði Don Comodo