Þjónandi forysta fuglar

Þjónandi forysta

Þekkingarsetur um þjónandi forystu

Hvað er þjónandi forysta?

Þjónandi forysta er ný sýn á samskipti og forystu og byggir á lýðræði og ævafornum gildum.

Hinn þjónandi leiðtogi er hógvær og hugrakkur og vinnur að vexti og velferð samstarfsfólks síns með þjónustu og skapandi samtali og ríkri ábyrgðarkennd.

Innri styrkur leiðtogans er afrakstur ígrundunar og sjálfsþekkingar.

Hugsjónin og heildarhagsmunir eru framar öllu öðru. Þjónandi leiðtogi tekur verkefni sín, ábyrgð og skyldur hátíðlega en sjálfan sig og athyglina sem hann hlýtur síður hátíðlega.

Að hvaða leyti er þessi hugmynd ólík hugmyndum um stjórnun og forystu sem hafa mótað fyrirtæki og stofnanir hérlendis og erlendis undanfarna áratugi?

Í fyrsta lagi felur þjónandi forysta í sér vilja til að þjóna öðrum með umhyggju og siðferðilegum styrk. Þetta gerir ríka kröfu til leiðtogans um sjálfsrýni og staðfasta sýn á hugsjón og tilgang starfa hans og hvílir á vilja til þjónustu þar sem leiðarljósið er velferð samstarfsfólks.

Í öðru lagi felur þjónandi forysta í sér samfélagslega ábyrgð umfram það sem tíðkast í viðteknum stjórnunarstílum og forystukenningum. Undanfarin ár hefur umræða um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja aukist, til dæmis Corporate social responsibility, CSR (http://www.csreurope.org/).

Slíkar áherslur má vart finna í stjórnunarkenningum sem að mörgu leyti líkjast þjónandi forystu, svo sem umbreytandi forysta (e. transformational leadership).


Hér má lesa skilgreiningu Greenleaf Center for Servant Leadership, Indianapolis …

Hér er sýnishorn af íslenskri þýðingu bókarinnar The case for servant leadership (Kent M. Keith, 2008).

What is Servant Leadership? …

Robert K. Greenleaf´s Writings

Servant Leadership Quotes …


Rannsóknargrein Sigrúnar Gunnarsdóttur um þjónandi forystu, tímaritið Glíman, 2011

» Þjónandi forysta í hnotskurn er sett hér fram.

» Þjónandi forysta í atvinnulífinu. Hér má sjá dæmi um nokkur fyrirtæki sem byggja starf sitt á þjónandi forystu.

Samantekt James Autry á ráðstefnu í Skálholti 20. júní 2008.

Hér eru nokkrar glærur til kynningar á þjónandi forysta (PDF)

Nokkur dæmi um þekkt orð og tilvitnanir um þjónandi forystu …


Servant Leadership Profile. Trinity Western University. (Wong & Page) …

http://www.greenleaf.org/whatissl/

Leave a Reply

© 2009-2012 Þjónandi forysta. All Rights Reserved.

This blog is powered by Wordpress and Magatheme by Bryan Helmig | Hýsing: Hannes í boði Don Comodo