Þjónandi forysta

Rannsóknir um þjónandi forystu hér á landi

Nokkrar rannsóknir um þjónandi forystu hafa verið framkvæmdar hér á landi. Rannsóknirnar eru unnar í samstarfi við Þekkingarsetur um þjónandi forystu og í samvinnu við Dr. Dirk van Dierendonck við Erasmusháskólann í Hollandi þar sem byggt er á SLS mælitækinu. Umsjón með rannsóknunum hér á landi og rétthafi íslensku útgáfu SLS mælitækisins er Dr. Sigrún Gunnarsdóttir. Undirbúningur rannsóknanna …

Rannsóknir um þjónandi forystu hér á landi Read More »

Þjónandi forysta og brautryðjendur. Ráðstefna á Bifröst 25. september 2015

Sjötta ráðstefnan um þjónandi forystu verður haldin á Bifröst föstudaginn 25. september 2015, kl. 10 – 15. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Þjónandi forysta og brautryðjendur. Fyrirlesarar og þátttakendur munu leita svara við spurningunni: ,,Hvernig getur þjónandi forysta verið drifkraftur brautryðjandans”.  Fyrirlesarar: Dr. Carolyn Crippen, Associate professor  Victoria University, Kanada. Dr. Kasper Edwalds, Senior researcher DTU Kaupmannahöfn. Gunnar Hólmsteinn, …

Þjónandi forysta og brautryðjendur. Ráðstefna á Bifröst 25. september 2015 Read More »

Ábyrgðarskylda í þjónandi forystu: Sameiginleg forysta og sameiginleg ábyrgðarskylda

Sumir fræðimenn hafa litið svo á að ábyrgðarskylda (e. accountability) sé meðal megineinkenna þjónandi forystu (Sipe og frick, 2009; van Dierendonck og Nuijten, 2011). Í mjög athyglisverðri grein eftir Ann McGee-Cooper og Duane Trammell (2009) útskýra þau hvað ábyrgðarskylda merkir og hver vegna hún er svo mikilvæg fyrir þjónandi forystu. Segja má að ábyrgðarskylda sé …

Ábyrgðarskylda í þjónandi forystu: Sameiginleg forysta og sameiginleg ábyrgðarskylda Read More »

Þjónandi forysta hjá Southwest Airlines

Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur verið rekið með samfeldum hagnaði síðastliðin 42 ár. Félagið hefur starfað eftir hugmyndafræði þjónandi forystu í áraraðir (Ryksmith, 2010) og er það álitið sem eins konar fyrirmyndar líkan á því sviði (Lichtenwalner, 2012). Félagið hefur í raun þjónandi forystu að stefnu sinni þar sem markmið þess eru m.a. að hlúa …

Þjónandi forysta hjá Southwest Airlines Read More »

Þjónandi forysta, yfirsýn, framtíðarsýn og ábyrgð

Framtíðarsýn er forystuhluti þjónandi forystu. Eitt af aðaleinkennum þjónandi leiðtoga er skörp sýn á hugsjón og framtíðina og Greenleaf (1970) bendir á að hæfileiki til að sjá fram á veginn skapi raunverulegt forskot leiðtogans til forystu. Grunnstoðir þjónandi forystu eru siðfræði og ábyrgð gagnvart hagsmunum heildar sem standa framar þrengri hagsmunum og fólk hefur áhuga …

Þjónandi forysta, yfirsýn, framtíðarsýn og ábyrgð Read More »

Hlustun – fyrstu viðbrögð þjónandi leiðtoga (servant leader)

Einbeitt hlustun eru fyrstu viðbrögð þjónandi leiðtoga þegar tekist er á við verkefnin (Greenleaf, 1970/2010, bls. 18) enda er einlægur áhugi á hugmyndum og högum annarra grunnstef þjónandi forystu (Sigrún Gunnarsdóttir, 2011). Góð hlustun er skýrasta merkið um einlægan áhuga og vilja til að kynnast hugmyndum annarra og efla hag þeirra. Greenleaf lýsir því svo …

Hlustun – fyrstu viðbrögð þjónandi leiðtoga (servant leader) Read More »

Róbert Guðfinnsson og þjónandi forysta

Róbert Guðfinnsson, frumkvöðull og fjárfestir, Siglufirði og Arizona var einn þeirra sem hélt erindi á ráðstefnunni um þjónandi forystu á Bifröst  31. október sl. Róbert fjallaði um áherslur sínar í stjórnun og forystu, lagði áherslu á gildifjölbreytileikans og hæfileika hvers og eins og sagði m.a. ,,Eitt það mikilvægasta er að setja sig vel inn í viðfangsefni samstarfsmanna …

Róbert Guðfinnsson og þjónandi forysta Read More »

Þriggja þátta líkan um þjónandi forystu (servant leadership) byggt á hugmyndum Robert K. Greenleaf

Sigrún Gunnarsdóttir hefur sett fram þriggja þátta líka um þjónandi forystu sem byggir á hugmyndum Robert K. Greenleaf. Líkanið var fyrst birt í Tímaritinu Glíman árið 2011. Þættirnir þrír eru einlægur áhugi á hugmyndum og hagsmunum annarra, innri styrkur og framtíðarsýn. Líkan Sigrúnar er byggt á ýmsum ritum Greenleafs, en einkum The Servant as Leader …

Þriggja þátta líkan um þjónandi forystu (servant leadership) byggt á hugmyndum Robert K. Greenleaf Read More »

Samskipti og áhrif samkvæmt Greenleaf: Sannfæring sem heiðarlegt samtal á jafningjagrundvelli

Í umfjöllun sinni um þjónandi forystu verður Robert K. Greenleaf tíðrætt um mannleg samskipti. Í grundvallarritum sínum um þjónandi forystu, The Servant as Leader (1970), en þó helst í The Institution as Servant (1972), fjallar hann meðal annars um sannfæringu sem samskiptaaðferð leiðtoga og aðferð til að hafa áhrif. Þvingun og klækir ámælisverðar samskiptaaðferðir  Til samanburðar nefndi Greenleaf …

Samskipti og áhrif samkvæmt Greenleaf: Sannfæring sem heiðarlegt samtal á jafningjagrundvelli Read More »

Auðmýkt til árangurs – hinn hljóðláti eiginleiki farsællar forystu

Auðmýkt leiðtogans er meðal lykilþátta þjónandi forystu (Dennis og Bocarnea, 2005; Wong og Davey, 2007; van Dierendonck og Nuijten, 2011). Óvíst er að margir setji auðmýkt í samhengi við áhrifaríka forystu enda hefur hugtakið margþætta merkingu og kallar því ekki alltaf upp í hugann aðdáunarverða eiginleika. Þannig merkir lýsingarorðið auðmjúkur „hlýðinn“ eða „eftirlátur“ skv. orðabók …

Auðmýkt til árangurs – hinn hljóðláti eiginleiki farsællar forystu Read More »