English
Þjónandi forysta fuglar

Þjónandi forysta

Þekkingarsetur um þjónandi forystu

MS námskeið um þjónandi forystu í Háskólanum á Akureyri í byrjun árs 2012

Í janúar nk. hefst MS námskeið um þjónandi forystu í Háskólanum á Akureyri. Um er að ræða námskeið til 10 ECTS og er kennt í fjórum lotum frá janúar til apríl 2012.

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakanda á forystu, stjórnun og ígrundun innan heilbrigðisstofnana með sérstakri áherslu á þjónandi forystu.

Námskeiðið höfðar jafnframt til þeirra sem starfa utan heilbrigðisþjónustunnar og nemendur fá tækifæri til að sníða verkefni að eigin sérsviði.

Námskeiðið er þrískipt, þ.e. þjónandi forysta, stjórnun og forysta og ígrundun. Í námskeiðinu er byggt á samtali og virkri þátttöku nemenda. Fjallað verður um hugmyndafræði þjónandi forystu, rannsóknir á sviðinu og kynnt raunhæf dæmi um fyrirtæki og stofnanir sem nýta hugmyndafræðina.

Kynntar verða helstu kenningar í stjórnun og forystu með sérstakri áherslu á viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar. Hugmyndafræði ígrundunar verður kynnt og hvernig megi beita ígrundun til að styrkja sig í starfi stjórnanda og/eða leiðtoga. Áhersla er lögð á að kynna nýjar rannsóknir um forystu, stjórnun og ígrundun innan heilbrigðisþjónustunnar.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Háskólans á Akureyri .

Kynningarfundur um þjónandi forystu 7. apríl 2011

Fimmtudaginn 7. apríl kl. 18 – 19:30 í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, Mánasal, 2. hæð.

Framsöguerindi halda þau Gunnbjörg Óladóttir (samantekt á PDF) og Sigurður Ragnarsson (samantekt á PDF). Eftir framsöguerindin verður umræða í hópum yfir súpu í matsal skólans.

Þátttökugjald kr. 700.- vegna kostnaðar við súpuna. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á heimasíðu þjónandi forystu fyrir kl. 17 miðvikudaginn 6. apríl nk. Fundurinn er öllum opinn.  Smellið hér til að skrá ykkur á fundinn.

Gunnbjörg Óladóttir er aðstoðarmaður forstjóra Brims hf. Gunnbjörg vinnur að doktorsritgerð við Edinborgarháskóla í trúarlífssálarfræði og er áhugamaður um þjónandi forystu. Sigurður Ragnarsson starfar við kennslu og fræðslu og kennir m.a. við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Sérsvið Sigurðar eru leiðtogafræði, samningatækni og markaðsfræði.  Samhliða starfi stundar hann doktorsnám í leiðtogafræðum, við Háskóla Íslands, með sérstakri áherslu á siðferðilega- og þjónandi forystu.

Hér er hægt að ná í samantekt af erindunum á PDF:

Gunnbjörg Óladóttir – lykil atriði þjónandi forystu

Sigurður Ragnarsson – þjónandi forysta og siðferði

Lifandi námstefna og metaðsókn á fyrirlestur í Háskóla Íslands

Námstefnan með Kent M Keith helgina 5. til 7. mars gekk afar vel. Þátttakendur komu víða að og nutu kennslu og leiðsagnar Kents og rökræðu og samtals í vinnuhópum. Mikil ánægja var meðal þátttakenda sem starfa víðsvegar í samfélaginu, t.d sem stjórnendur í viðskiptalífinum, kennarar í framhaldskólum,  rannsakendur og kennarar í háskólum, prestar í þjónustu kirkjunnar, stjórnendur á sjúkrahúsum og leiðtogar í þjónustu sveitarfélaga. Fyrirlestrar Kents fjölluðu um inntak þjónandi forystu frá ýmsum sjónarhornum. Þátttakendur glímdu við verkefni og spurningar um eigin áherslur og viðhorf til grundvallarþátta þjónandi forystu; að þekkja sjálfan sig, hlusta af alúð, leiðbeina og laða fram orku og vitsmuni annarra, breyta píramídanum og horfa fram á veginn. Námstefnan undirstrikaði sannarlega gildi hugmyndafræðinnar og gildi hennar hér á landi.

Ljósmyndir frá námsstefnunni:

Fyrirlestur Kents í hátíðarsal Háskóla Íslands var mjög vel sóttur og setið í nær hverju sæti. Kent lýsti á lifandi og sannfærandi hátt hvernig þjónandi forystu eflir siðgæði fyrirtækja og glæðir störf og stjórnun þannig að tilgangur og merking starfanna eru í forgrunni og hafa djúp og jákvæð áhrif á líðan starfsfólks og árangur . Kent dró fram sterk rök fyrir því að með hugmyndafræði þjónandi forystu og aðferðum hennar vex árangur fyrirtækja. Velgengni fjölmargra fyrirtækja vitna um gildi þjónandi forystu fyrir rekstur og hagsmuni samfélagsins í heild.

Dagskrá námskeiðs Dr. Kent M. Keith í Skálholti 5.-7. mars 2010

Föstudagur 5. mars
Kl. 18:00. Dagskrá hefst með kvöldverði
Kl. 19:30. Kent M Keith: The Power Model vs. Servant Model of Leadership
Laugardagur 6. mars
Kl. 10:00. Kent M Keith. Vinnusmiðja nr. 1: The Key Practices of Servant Leaders
Kl. 14:00. Kent M Keith. Vinnusmiðja nr. 2: The Servant Institution
Kl. 18:00 Tónlist og kvöldverður
Sunnudagur 7. mars
kl. 10:00. Kent M Keith: Meaning and Ego in the Life of a Servant Leader
Námskeiðinu lýkur með umræðum að loknu erindi Dr. Keith.

Skráning
Skráning er á skalholt.is, símleiðis í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.
Námskeiðskostnaður: Gisting og fullt fæði 17.000.- kr. Námskeiðsgjald: 10.000.- kr.

Messa í Skálholtskirkju kl. 14
Að námskeiði loknu er messa í Skálholtskirkju kl. 14 þar sem Dr. Kent M. Keith flytur predikun undir yfirskriftinni  Servant leadership in the broader context of the paradoxical life and teachings of Jesus.

Kent M. Keith – Námskeið 5. – 7. mars 2010

Skráning er hafin á námskeið Dr. Kent M. Keith í Skálholti helgina 5.-7. mars 2010.

Hægt er að skrá sig rafrænt á skalholt.is, símleiðis í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.

Námskeiðið hefst á föstudegi kl. 18.00 og því lýkur um kaffileitið á sunnudegi.

Námskeiðskostnaður: Gisting og fullt fæði 17.000.- kr. Námskeiðsgjald: 10.000.- kr.

Dagskrá námskeiðsins verður birt hér á síðunni í janúar nk.

© 2009-2012 Þjónandi forysta. All Rights Reserved.

This blog is powered by WordPress and Magatheme by Bryan Helmig | Hýsing: Hannes í boði Don Comodo